Góð byrjun á deginum.

Ég vaknaði í morgun við Alexander þar sem hann sat við hlið mér með bangsa í fanginu. Hann klappaði mér um kollinn á meðan hann sagði mér sögu. Þegar sögunni lauk söng hann stutta vísu, spennti svo greipar og fór með Faðirvorið. Síðan kyssti hann mig, sagði góða nótt og trítlaði fram í stofu þar sem hann kveikti á sjónvarpinu. Ég renndi mér fram úr og við borðuðum saman Weetabix á meðan við horfðum á japanska teiknimynd með norsku tali.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Góðir saman feðgarnir.

Mig rámar í að eitthvað svipað hafi oft hent fyrir rúmum 20 árum.....

Níels A. Ársælsson., 22.2.2009 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband