Helgin sem leið

Á föstudaginn var Halloween partý. Ég mætti sem Jókerinn (hans Heath Ledgers, ekki Jack Nicholsons). Birti mynd af því seinna.
Á laugardagsmorgun tók ég að mér smá vinnuviðvik. Hópferð hafði verið bókuð hjá hjólatöxum í Köben. Ég var einn 20 hjóleiðamanna. Skemmtileg reynsla. Hélt að líf mitt væri á enda um miðja fyrstu ferðina. Tókst svo loks að gera gírana mér hliðholla og var brattur við upphaf annarar ferðar. Vegna skorts á hjólum var þá skellt á mig 3. farþeganum. Sú ferð var þó stutt og ég lifði hana einnig af. Í þriðju og síðustu ferðinni var hjólið gírað lágt og farþegarnir tveir einungis meðalþungir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband