Sænska klámkynslóðin

Samkvæmt dönsku götublaði sem ég las um daginn þá ætla svíar að innleiða nýtt námsefni í grunskólum landsins. Frá og með þessari önn munu nemendur í 8. bekk og upp úr, vera með Pornografíu áfanga á námskrá sinni. Sænsk menntayfirvöld ákváðu að fara þessa leið til að kynna unglingana fyrir uppbyggingu klámefnis, tilgangi og því hversu mikið, eða lítið, klám tengist raunverulegu kynlífi. Haft er eftir talsmanni yfirvalda að: "klám er sífellt fyrir augunum á okkur og verður eilíft aðgengilegra fyrir börnin okkar. Í stað þess að þau horfi á þetta ein þá fá þau leiðsögn frá skólanum og þannig má forðast ranghugmyndir". Það skal þó tekið fram að grunnskólanemendur munu ekki sækja vídjó-tíma heldur verður námið alfarið bóklegt.
Þess má geta að Svíðþjóð, eitt af fyrstu löndum heims til að gera svo, höf að kenna kynfræðslu á grunnskólastigi. Í fyrstu sænsku kennslubók námsgreinarinnar, frá 1957, er varað við því að blanda saman dansi og áfengi.

   Þetta er Ársæll Níelsson sem bloggar frá Kaupmannahöfn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Langar að benda þér á að þessi færsla þín birtist í Morgunblaðinu þann 16. september. Magnað!

Benedikt Hreinn Einarsson (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 14:28

2 Smámynd: Ársæll Níelsson

Hehe, skemmtilegt.

Takk fyrir ábendinguna Benni.

Ársæll Níelsson, 17.9.2007 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband